Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 19. janúar 2023 17:00
Elvar Geir Magnússon
Mwepu útskrifaður af sjúkrahúsi
Mynd: Getty Images
Enock Mwepu, fyrrum miðjumaður Brighton, hefur verið útskrifaður af sjúkrahúso í Sambíu eftir að hann var þar í fjóra daga.

Mwepu tilkynnti í október að hann þyrfti að hætta í fótbolta vegna hjartagalla. Hann var svo lagður inn á spítala eftir að hafa fengið hjartaáfall en gangráður hans bilaði.

Mwepu er á batavegi og mun fara í skoðun í næstu viku þar sem næstu skref verða ákveðin.

Mwepu gekk í raðir Brigton frá austurríska liðinu RB Salzburg 2021 og skoraði sex mörk í 23 leikjum fyrir liðið.

Í síðasta mánuði tók hann að sér þjálfarastarf í akademíu Brighton þar sem hann þjálfar börn níu ára og yngri.
Athugasemdir
banner
banner
banner