Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. janúar 2023 17:59
Brynjar Ingi Erluson
Newcastle lánar Wood til Forest
Chris Wood er á förum frá Newcastle
Chris Wood er á förum frá Newcastle
Mynd: Getty Images
Newcastle United hefur samþykkt að lána Chris Wood til Nottingham Forest út þessa leiktíð.

Wood kom til Newcastle frá Burnley fyrir 20 milljónir punda fyrir ári síðan en hann var einn af fyrstu leikmönnunum sem voru keyptir af nýju eigendunum.

Nýi-Sjálendingurinn hefur ekki verið í jafn stóru hlutverki á þessu tímabili og skorað aðeins tvö mörk í átján leikjum. Framherjinn hefur komið við sögu í öllum leikjum liðsins fyrir utan tvo gegn West Ham og Fulham fyrr á tímabilinu en spilitími hans er einungis 441 mínúta.

Hann mun nú fara til Forest á láni út þessa leiktíð en skiptin verða gerð varanleg fyrir 15 milljónir punda í sumar ef ákveðnum skilyrðum er mætt.

Wood mun nú semja um kaup og kjör við Forest áður en hann fer í læknisskoðun.

Forest mætir Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni á laugardag en Forest er að vonast til að geta gengið frá samningum við Wood svo hann geti tekið þátt í verkefninu.
Athugasemdir
banner
banner