Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. janúar 2023 16:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rangers að ganga frá kaupum á Todd Cantwell
Mynd: Getty Images
Rangers hefur fengið samþykkt kauptilboð í Todd Cantwell hjá Norwich.

Cantwell er 24 ára miðjumaður sem hefur leikið með Norwich allan sinn feril en er búinn að kveðja leikmannahópinn hjá Norwich.

Hann mun gangast undir læknisskoðun um helgina og verður formlega kynntur sem leikmaður félagsins í kjölfarið.

PSV í Hollandi hafði einnig áhuga á Cantwell en hann endaði á því að fara til Skotlands. Hann verður fyrsti leikmaðurinn sem Michael Beale fær til Rangers.

Cantwell hefur komið við sögu í átján leikjum með Norwich en hefur ekki tekið þátt í síðustu sjö leikjum liðsins í öllum keppnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner