Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 19. janúar 2023 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Segir leikmenn ekki vera á móti sér - „Þetta bull"
Mynd: EPA

Leeds vann 5-2 sigur á Cardiff í enska bikarnum í gær og er því komið áfram í fjórðu umferð.


Liðinu hefur ekki gengið vel í deildinni en Leeds er í 15. sæti aðeins tveimur stigum frá fallsæti.

Einhverjar sögur hafa verið í gangi um að leikmenn liðsins séu farnir að snúast gegn Jesse Marsch stjóra liðsins en hann sló á þær sögusagnir eftir sigurinn í gær.

„Þetta bull með að leikmenn séu á móti mér, það er skelfilegt. Við erum sameinaðir. Við gerum allt saman og höfum mikla trú á sjálfum okkur," sagði Marsch.


Athugasemdir
banner
banner
banner