Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. janúar 2023 17:59
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Messi og Ronaldo báðir á skotskónum
Lionel Messi og Cristiano Ronaldo í leiknum
Lionel Messi og Cristiano Ronaldo í leiknum
Mynd: EPA
Lionel Messi og Cristiano Ronaldo eru mögulega að mætast í síðasta sinn á ferlinum en Paris Saint-Germain og stjörnulið Al-Nassr og Al-Hilal etja kappi í Riyadh, höfuðborg Sádi-Arabíu, þessa stundina. Staðan er 2-1 fyrir PSG og eru þeir félagarnir báðir búnir að skora.

Ronaldo samdi við Al-Nassr undir lok síðasta árs og lauk þar með ferli sínum í Evrópu.

Þetta er fyrsti leikur hans í Sádi-Arabíu og vel við hæfi að mæta Messi.

Messi kom PSG yfir á 3. mínútu er hann lyfti boltanum yfir David Ospina í marki stjörnuliðsins en Ronaldo jafnaði metin með marki úr vítaspyrnu á 34. mínútu.

Juan Bernat fékk rauða spjaldið í liði PSG stuttu síðar en það skipti engu máli því Marquinhos kom franska liðinu aftur í forystu undir lok fyrri hálfleiks. Neymar gat komið PSG í 3-1, en hann klikkaði á vítapunktinum. Mörkin hjá Messi og Ronaldo má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hjá Messi
Sjáðu jöfnunarmark Ronaldo
Athugasemdir
banner
banner