Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. febrúar 2021 20:00
Victor Pálsson
Viðurkennir að hann nái ekki hæstu hæðum hjá Norwich
Mynd: Getty Images
Delia Smith, eigandi Norwich, hefur viðurkennt að félagið muni að lokum missa varnarmanninn efnilega Max Aarons.

Aarons er orðaður við hin ýmis félög þessa dagana en hann er 21 árs gamall og á mikla framtíð fyrir sér.

Smith veit að það sé tímaspursmál hvenær Aarons fer en Barcelona er á meðal þeirra liða sem eru talin skoða leikmanninn.

„Sem betur fer gerir teymið okkar á bakvið tjöldin okkur kleift að eiga nokkra æðislega leikmenn," sagði Smith.

„Þeir eru vel agaðir og Max Aarons er einn afþ eim betri. Hann verður einn af þeim bestu en það verður ekki hjá Norwich."

„Hann veit það og við vitum það. Við höfum ekki lent í veseni með Max eða hans foreldra varðandi þetta mál. Augljóslega missum við hann en það er hluti af okkar plönum."
Athugasemdir
banner