Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 19. febrúar 2021 08:00
Aksentije Milisic
Zaha vill spila í hæsta gæðaflokki
Mynd: Getty Images
Wilfried Zaha, leikmaður Crystal Palace, hefur sagt að hann vilji yfirgefa félagið og spila í hæsta gæðaflokki.

Zaha hefur verið besti leikmaður Crystal Palace síðustu ár en tölfræðin hjá liðinu í þeim leikjum sem hann er ekki með er vægast sagt skelfileg.

Hann hefur lengi verið orðaður burt frá liðinu en þrátt fyrir það er hann ennþá hjá Lundúnarliðinu. Arsenal reyndi eitt sinn að kaupa hann en þau kaup náðu ekki að ganga í gegn.

„Ég vil spila í hæsta gæðaflokki og sýna börnunum mínum medalíur sem ég hef unnið," sagði Zaha.

„Ég hef verið hjá Palace frá því ég var átta ára. Ég hef gefið félaginu allt sem ég á og allir vita það."

Leikmaðurinn vonast til þess að verða seldur í sumar og komast í lið sem tekur þátt í Meistaradeild Evrópu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner