Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 19. mars 2019 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bale gæti endað í Bayern Munchen
Mynd: Getty Images
Real Madrid er líklegt til stórræða í komandi leikmannaglugga. Gareth Bale, leikmaður félagsins, er mögulega á leið frá félaginu.

Bale hefur verið orðaður við Manchester United, Tottenham og Chelsea í ensku Úrvalsdeildinni en heimildir AS herma að Bayern Munchen sé að undirbúa tilboð í Bale.

Arjen Robben og Franck Ribery, kantmenn Bayern, eru líklega á förum í sumar og þarf þýski risinn á innspýtingu að halda. Heimildamaður TeamTalk sagði að Bayern gæti vel fengið Gareth Bale sem arftaka Robben og Ribery. Liðið þarf nýtt blóð til þess að rífa sig upp úr lægðinni sem félagið er í.

Bale er á mjög góðum samning hjá Real Madrid og það er einna helsta ástæðan fyrir því að félög sjá ekki fram á að geta samið við leikmanninn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner