Íslenski milljarðarmæringurinn, Björgólfur Thor Björgólfsson fagnar 52 ára afmæli sínu í dag.
Knattspyrnugoðsögnin og góðvinur Björgólfs, David Beckham sendir Björgólfi Thor afmæliskveðju á Instagram reikningi sínum í tilefni dagsins.
Knattspyrnugoðsögnin og góðvinur Björgólfs, David Beckham sendir Björgólfi Thor afmæliskveðju á Instagram reikningi sínum í tilefni dagsins.
David Beckham og Björgólfur Thor Björgólfsson eru miklir vinir en þeir kynntust í gegnum börn sín sem voru saman í skóla í London.
Árið 2016 skelltu David og Victoria Beckham sér til Íslands með Björgólfi og eiginkonu hans. Þar var tíminn nýttur í veiðar og í að skoða landið.
Beckham og Björgólfur deila áhuga á mótorhjólum og hafa skellt sér saman í ferðir. Í lok árs 2017 voru fjölskyldurnar saman í Los Angeles þar sem þær njóta lífsins á ströndinni.
Björgólfur Thor Björgólfsson tók stórt stökk á lista Forbes yfir milljarðamæringa heimsins á milli ára. Í fyrra var Björgólfur Thor í 1.415 sæti en er nú í 1.116 sæti á listanum með eignir upp á 1,8 milljarð dala. Það þýðir að auður Björgólfs Thors er metinn á 186,3 milljarða króna.
Björgólfur Thor er eini Íslendingurinn á listanum og í rauninni eini Íslendingurinn sem hefur nokkru sinni komist á listann.
Við á Fótbolta.net óskum Björgólfi Thor til hamingju með daginn.
Athugasemdir