Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 19. mars 2019 16:26
Ívan Guðjón Baldursson
De Bruyne búinn að skrifa undir hjá umboðsskrifstofu Jay-Z
Mynd: Getty Images
Kevin De Bruyne er búinn að skipta um umboðsmann og er nú samningsbundinn umboðsskrifstofu bandaríska tónlistarmannsins Jay-Z, Roc Nation Sports.

De Bruyne staðfesti fregnirnar með myndbirtingu á Instagram en hann var áður fyrr á mála hjá J&S International Football Management skrifstofunni.

Romelu Lukaku og Jerome Boateng eru dæmi um knattspyrnumenn sem eru búnir að færa sig yfir til Roc Nation Sports. Aðrir íþróttamenn á borð við Kevin Durant (NBA), Dez Bryant (NFL) og Miguel Cotto (box) eru einnig samningsbundnir en umboðsskrifstofan var stofnuð 2013.

De Bruyne er 27 ára gamall og talinn meðal bestu miðjumanna heims um þessar mundir. Hann leikur lykilhlutverk í liði Manchester City og með belgíska landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner