Undanúrslit enska bikarsins nálgast óðfluga og munu leikirnir fara fram á Wembley, þjóðarleikvangi Englendinga.
Búið er að ákveða leiktíma og mun fyrri undanúrslitaleikurinn fara fram laugardaginn 6. apríl, klukkan 17:30. Þar munu Englandsmeistarar Manchester City mæta Brighton & Hove Albion.
Seinni leikurinn er á dagskrá sunnudaginn 7. apríl klukkan 16:00. Þar eigast Watford og Wolves við í hörkuleik en smávægilegt vandamál kom upp skömmu eftir dráttinn. Treyjulitir liðanna eru nauðalíkir og vill hvorugt félag sætta sig við að spila í útivallartreyju.
Þá var gluggað í reglubók enska knattspyrnusambandsins og kom í ljós að peningakast mun úrskurða hvaða treyjum liðin munu leika í. Sá sem vinnur kastið fær að velja treyju til að spila í. Þetta kast mun fara fram í höfuðstöðvum knattspyrnusambandsins, sem eru einnig á Wembley.
Treyjuliturinn getur skipt menn máli en Úlfunum hefur til að mynda gengið skelfilega í öðrum heldur en gulltreyjunum sínum á tímabilinu. Þeir hafa unnið alla leiki sína í bikarnum hingað til nema einn, 2-2 jafntefli gegn Shrewsbury í hvítum treyjum.
Athugasemdir