Landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson æfir þessa dagana með Íslandi í smábænum Peralada í Katalóníu.
Hann hvíldi í gær en var mættur á æfingu liðsins í morgun.
Tattú sem hann er með á kálfunum vöktu athygli fjölmiðlamanna en hann er með fýlukall á vinstri kálfa og broskall á þeim hægri.
Myndirnar hér með fréttinni og að neðan sýna tattúin en við vitum ekki merkinguna á bakvið afhverju hann valdi þessi tattú.
Athugasemdir