Adam Ægir Pálsson leikmaður Keflavíkur sýnir á sér hina hliðina á Fótbolta.net í dag.
Adam lék einn leik með Selfossi í Inkasso-deildinni síðasta sumar og fimm leiki með Víði Garði í 2. deildinni. Hann bíður enn eftir fyrsta mótsleiknum með Keflavík en hann hefur verið að spila mjög vel með liðinu á undirbúningstímabilinu.
Adam lék einn leik með Selfossi í Inkasso-deildinni síðasta sumar og fimm leiki með Víði Garði í 2. deildinni. Hann bíður enn eftir fyrsta mótsleiknum með Keflavík en hann hefur verið að spila mjög vel með liðinu á undirbúningstímabilinu.
Fullt nafn: Adam Ægir Pálsson
Gælunafn: Young Rúrik Gísla hehehe
Aldur: 20
Hjúskaparstaða: Lausu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 2016
Uppáhalds drykkur: Dessarono í Redbull eða appelsínusafa, geitin
Uppáhalds matsölustaður: Væri til í solid spons frá Hananum. Held ég sé búinn að eyða helvíti miklum pening þar
Hvernig bíl áttu: Fínasta Golf sem ég á lítið í en þykist eiga
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Sósan- þáttur 3 mín 4:30
Uppáhalds tónlistarmaður: Er líklega stærsti aðdánandi Flóna á landinu en það er annað mál
Uppáhalds samskiptamiðill: Get ekki hugsað mér að missa gellu snöppin hans Jónas Breka félaga míns þannig Snappið er það.
Fyndnasti Íslendingurinn: Björn Bragi auto
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Jarðaber, mars, smartískrul
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Er á leiðinni´´ Frá Birgittu Líf
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Djöfull eru Njarðvík boring lið
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Birnir snær í Val er helvití flinkur með boltann
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Eysteinn Húni og Janko
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Jón Dagur Þorsteinsson. Einn vel þreyttur gæji utan vallar líka.
Sætasti sigurinn: Þegar ég tók Albert Guðmunds í 1v1
Mestu vonbrigðin: Að hafa aðeins spilað með 4 liðum á Íslandi, en það er nú eitthvað eftir af ferlinum.
Uppáhalds lið í enska: United. Er samt engin rosalegur fan
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Ægir Jarl Jónasson. Það er einn alvöru skrokkur
Fyrsta verk ef þú yrðir formaður KSÍ: Velja mig í landsliðið líklega
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Davíð Snær í Keflavík 100p
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Allavegana ekki Ísak Óli Helga. Óskar Jónsson er með þokkalegt smetti
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Thelma Lóa Hermanssdóttir. Vonandi mun Hemmi Hreiðars ekki lesa þetta..
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Leo Messi eða Jónas Breki
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Frans Elvars, gæjinn er rosalegur á snappinu
Uppáhalds staður á Íslandi: Bærinn
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Jón Dagur þorsteinsson hrækti einu sinni á mig í leik, gaman af því núna
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa: Læt oftast Davíð Ingvars heyra það, fer svo að sofa. Hundleiðinlegur gaur
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Mikill kraftlyftingar fan
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike mercurial, Nike hit me up
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Öllu því miður
Uppáhalds Eurovision lag frá upphafi: Fyrir aðra-Flóni
Vandræðalegasta augnablik: Þetta augnablik sem ég mun eiga við fólk þegar þau eru búin að lesa þetta Grill 66
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Tæki með mér Albert Guðmunds svo ég gæti aðeins hlegið af hetjusögunum hans. Svo er Emil Páls með allt á hreinu og meistari í leiðinni þannig tek hann með mér. Þriðji væri Gisli Martin, myndi þurfa taka hann með annars myndi hann taka dramakast.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Spilaði fyrir Villareal og Elche þegar ég var yngri
Athugasemdir