Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 19. mars 2019 07:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Messi: Fyrsta sinn sem stuðningsmenn andstæðinganna kalla nafn mitt
Mynd: Getty Images
Lionel Messi skoraði sína 34. þrennu í La Liga gegn Real Betis á sunnudaginn. Þetta var hans 51. þrenna í öllum keppnum á ferlinum. Barcelona vann leikinn 1-4.

Messi sagði í viðtali eftir leik að þetta væri í fyrsta skiptið sem hann tæki eftir því að stuðningsmenn anstæðinganna kölluðu nafn sitt.

„Sannleikurinn er sá að ég man ekki eftir því að þetta hafi gerst áður. Ég er ánægður með að þeir gerðu þetta. Alltaf þegar við komum á þennan leikvöll er okkur tekið mjög vel," sagði Messi.

„Mörkin voru flott en mikilvægast var að vinna leikinn. Atletico töpuðu og við vissum að þetta var frábært tækifæri til að auka forskot okkar"


Sjá einnig: Eftirminnilegustu þrennur Messi
Sjá einnig: Stuðningsmenn klöppuðu fyrir Messi
Athugasemdir
banner
banner
banner