Jadon Sancho hefur verið frábær með Borussia Dortmund á tímabilinu og er í landsliðshóp Englendinga sem mætir Tékklandi og Svartfjallalandi í undankeppni EM.
Þar er hann með nokkrum af sínum fyrrverandi liðsfélögum hjá Manchester City, þar á meðal vini sínum Raheem Sterling.
Sterling er mikið að grínast með Sancho og vill sannfæra hann um að ganga aftur í raðir Man City og birti hann færslu á Twitter þess efnis.
Færslan er mynd af honum og Sancho að spjalla saman með textanum „ertu í alvöru með endurkaupsákvæði í samningnum?"
Þetta væri ekki frásögu færandi ef Sterling hefði ekki eytt tístinu út skömmu síðar, sem gefur í skyn að slíkt ákvæði gæti hafa leynst í kaupsamningnum.
Athugasemdir