KSÍ staðfesti fyrr í dag leiktíma undanúrslita Lengjubikarsins en er strax búið að samþykkja frestun á öðrum þeirra.
ÍA tekur á móti KA í Akraneshöllinni á fimmtudaginn og átti viðureign KR og FH að fara fram á KR-velli næsta laugardag.
FH sendi beiðni á KSÍ um að fresta leiknum vegna landsliðsverkefna leikmanna og var sú beiðni samþykkt.
Leikurinn mun núna fara fram klukkan 13:00, þann 30. mars á KR-velli.
„Þessi breyting hefur jafnframt þau áhrif að leikdagur fyrir úrslitaleikinn verður staðfestur þegar fyrir liggur hvaða lið leika til úrslita," segir í frétt Knattspyrnusambandsins.
Athugasemdir