Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 19. mars 2020 11:45
Elvar Geir Magnússon
Raiola: Vil fara með frábæran leikmann til Real Madrid
Mino Raiola, umboðsmaður Pogba.
Mino Raiola, umboðsmaður Pogba.
Mynd: Getty Images
Ofurumboðsmaðurinn Mino Raiola segist vilja fara með frábæran leikmann til Real Madrid í sumar.

Fjölmiðlar telja að þarna sé Raiola að tala um Paul Pogba en í morgun sagði The Sunað Manchester United væri tilbúið að selja franska miðjumanninn.

Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, er mikill aðdáandi Pogba.

„Ég vil fara með frábæran leikmann þangað og mun reyna það í sumar. Ég og leikmaðurinn yrðum stoltir því Real Madrid er frábært félag," segir Raiola.

Raiola segist vera í góðu sambandi við framkvæmdastjóra Real Madrid, Jose Angel Sanchez.

„Ég elska að ræða við hann um fótbolta og málefni FIFA því skoðanir hans eru áhugaverðar."

Daily Mail sagði í síðustu viku að Pogba hefði skipt um skoðun og vilji nú vera áfram hjá Manchester United.
Athugasemdir
banner