Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 19. mars 2021 13:54
Elvar Geir Magnússon
Dino Hodzic er á leið í ÍA
Dino Hodzic.
Dino Hodzic.
Mynd: Haukur Gunnarsson
Markvörðurinn Dino Hodzic er á leið í ÍA samkvæmt hlaðvarpsþættinum Ástríðan hér á Fótbolta.net.

„Dino Hodzic æfði með ÍA í gær, Aron Bjarki markmaður ÍA æfði með Kára á móti. Mjög líklegt að skiptin gangi í gegn í dag eða fljótlega eftir helgi #ástríðan" segir Ástríðan á Twitter.

Dino er 25 ára Króati sem gekk í raðir ÍA sumarið 2019 en skipti svo í Kára fyrir síðasta tímabil.

Hann hefur hafnað tilboðum úr efri deildum eins og kom fram í viðtali sem hann fór í fyrr á árinu.

Hjá ÍA á hann væntanlega að veita Árna Snæ Ólafssyni samkeppni um markvarðarstöðuna.

ÍA mun mæta Val í opnunarleik Pepsi Max-deildarinnar 22. apríl.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner