Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair svaraði stuðningsmanni Liverpool svaraði spurningu frá stuðningsmanni Liverpool á athyglisverðan hátt á samfélagsmiðlum í dag.
Það var dregið í átta-liða úrslit og undanúrslit í Meistaradeildinni í dag en dráttinn má skoða hérna.
Liverpool dróst gegn Real Madrid í átta-liða úrslitunum og mun mæta annað hvort Porto eða Chelsea ef þeir komast í undanúrslitin.
Einn stuðningsmaður Liverpool spurði Ryanair að því á Twitter hvernig það væri ódýrast að koma til Istanbúl þar sem úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fer fram þetta árið.
Það er óhætt að segja að Ryanair hafi enga trú á Liverpool í keppninni. „Í augnablikinu fljúgum við því miður ekki til Istanbúl. Þar sem þú ert stuðningsmaður Liverpool þá búumst við ekki við því að þú farir þangað í bráð heldur."
Englandsmeistarar Liverpool hafa ekki átt gott tímabil og sitja þessa stundina í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Hi Sean, unfortunately we currently do not fly to Istanbul.
— Ryanair (@Ryanair) March 19, 2021
Seeing as you are a Liverpool fan, we doubt you'll be flying there any time soon either. https://t.co/BvONIYTnLP
Athugasemdir