fös 19. mars 2021 15:30
Elvar Geir Magnússon
Guardiola um Haaland: Tölurnar tala sínu máli
Erling Haaland.
Erling Haaland.
Mynd: Getty Images
Það verður spennandi að sjá norska sóknarmanninn Erling Haaland gegn Manchester City. Haaland raðar inn mörkum fyrir Borussia Dortmund en liðið dróst gegn City í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Faðir hans, Alf-Inge, spilaði í þrjú tímabil fyrir City 2000-03.

Pep Guardiola var á fréttamannafundi í dag spurður út í Haaland.

„Tölurnar tala sínu máli. Hann er einn besti sóknarmaður heims. Allir vita hvaða gæðum hann býr yfir sem leikmaður," segir Guardiola.

City er eitt af mörgum félögum sem Haaland hefur verið orðaður við en City er talið líklegt til að reyna að bæta sóknarmanni í hóp sinn.

„Hann er leikmaður Borussia Dortmund. Ég er ekki hrifinn af því þegar fólk talar um mína leikmenn."
Athugasemdir
banner
banner
banner