Joe Hart þurfti að senda frá sér afsökunarbeiðni um leið og hann vaknaði í morgun.
Það var vegna þess að það birtist frekar vandræðaleg færsla á Instagram-reikningi hans í gærkvöldi.
Tottenham tapaði 3-0 fyrir Dinamo Zagreb frá Króatíu í framlengdum leik í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar og féll úr keppni.
Sá aðili sem stýrir Instagram-reikningi Hart var ekki alveg á tánum því sá hélt að Tottenham hefði unnið leikinn 3-0. „Verkefnið klárað," sagði á Instagram-reikningnum eftir leikinn.
Hart þurfti að biðjast afsökunar með myndbandi í morgun. „Mér finnst ég þurfa að biðjast afsökunar fyrir hönd þeirra sem stjórna samfélagsmiðlum hjá mér. Það hélt einhver að við hefðum unnið 3-0 í gær, það er sannleikurinn og þetta er óásættanlegt."
Yeah, someone’s getting sacked today.
— HLTCO (@HLTCO) March 19, 2021
pic.twitter.com/dRbk0XikPw
Athugasemdir