Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 19. mars 2021 22:50
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Nadía afgreiddi ÍA á Skaganum
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
ÍA 2 - 3 Víkingur R.
0-1 Nadía Atladóttir ('27)
0-2 Dagný Rún Pétursdóttir ('43)
0-3 Nadía Atladóttir ('72)
1-3 Unnur Ýr Haraldsdóttir ('81)
2-3 Erla Karitas Jóhannesdóttir ('86)

ÍA tók á móti Víkingi R. í B-deild Lengjubikars kvenna í kvöld og höfðu gestirnir úr Fossvoginum betur.

Nadía Atladóttir og Dagný Rún Pétursdóttir skoruðu í fyrri hálfleik svo Víkingur leiddi með tveimur mörkum í leikhlé.

Nadía gerði þriðja mark Víkings á 72. mínútu og þá vöknuðu Skagastúlkur loks til lífsins fyrir framan markið.

Unnur Ýr Haraldsdóttir og Erla Karitas Jóhannesdóttir minnkuðu muninn á lokakaflanum en það nægði ekki til að bjarga stigi.

Víkingur er með fimm stig eftir þrjár umferðir. ÍA er með fjögur stig.
Athugasemdir
banner
banner