Gary John Martin var í liði Vals sem mætti Stjörnunni í úrslitaleik Meistarakeppni KSÍ.
Valur tapaði í vítaspyrnukeppni eftir að hafa leikið síðari hálfleikinn manni færri, en Hannes Þór Halldórsson fékk beint rautt í sínum fyrsta keppnisleik eftir heimkomuna.
Haraldur Björnsson réði úrslitum með góðri vítavörslu í sjöttu umferð spyrnukeppninnar. Gary Martin skoraði þó úr sinni spyrnu.
Haraldur birti mynd af meisturum meistaranna á Instagram og skildi Gary eftir ummæli.
„Ég skoraði úr mínu víti mér er sama."
Gary Martin gekk í raðir Íslandsmeistara Vals í janúar. Hann gerði 5 mörk í 13 leikjum fyrir Víking R. í fyrra.
Smella þarf á myndina til að sjá ummæli Gary.
Athugasemdir