Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 19. apríl 2019 12:27
Arnar Helgi Magnússon
Hilmar Árni skrifar undir þriggja ára samning
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hilmar Árni Halldórsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Stjörnuna. Hann mun því leika með Stjörnunni út tímabilið 2021.

Þú getur keypt Hilmar Árna í þitt draumalið. Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Hilmar hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar undanfarin ár og því verða þetta að teljast frábærar fréttir fyrir Stjörnuna og Garðbæinga.

„Það er gríðarlega sterkt fyrir okkur Stjörnumenn að njóta krafta þessa öfluga leikmanns áfram enda lykilmaður í því að festa liðið enn frekar í sessi sem eitt af bestu liðum landsins," segir í fréttatilkynningu Stjörnunnar.

Hilmar Árni skoraði átján mörk á síðasta tímabili, sextán þeirra í deildinni.

Stjarnan mætir KR í fyrstu umferð Pepsi Max-deildarinnar laugardaginn 27. apríl næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner