Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 19. apríl 2019 11:00
Arnar Helgi Magnússon
Höddi Magg með leiksigur - Búinn að missa allt nema Pepsi Max-deildina
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eftir viku verður flautað til leiks í Pepsi Max-deildinni en opnunarleikur mótsins verður á Hlíðarenda þegar Valur fær Víking R. í heimsókn.

Hörður Magnússon mun líkt og síðustu ár stýra Pepsi Max mörkunum á Stöð 2 Sport. Þar gerir hann upp umferðina ásamt sérfræðingum.

Með honum í sumar verða þau Atli Viðar Björnsson, Máni Pétursson, Hallbera Guðný Gísladóttir, Logi Ólafsson, Reynir Leósson og Þorvaldur Örlygsson.

Í gærkvöldi var frumsýnd ný auglýsing fyrir Pepsi Max-mörkin og eins og undanfarin á fer Höddi Magg með leiksigur í auglýsingunni.

Söguþráðurinn er sá að hann er búinn að missa frá sér fjölskylduna, mannlega nánd og hann fær ekki lengur boð í fermingar. Eina sem hann á eftir eru Pepsi Max-mörkin.

Þessa frábæru auglýsingu má sjá hér að neðan.



Smelltu hér til að taka þátt í Draumliðsleiknum!
Athugasemdir
banner