Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. apríl 2019 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Joao Felix fagnaði þrennunni með boltasækinum
Mynd: Getty Images
Joao Felix er 19 ára leikmaður Benfica sem er eftirsóttur af stærstu liðum Evrópu. Hann hefur átt stórkostlegt tímabil og er kominn með 18 mörk í 36 leikjum.

Hann gerði fyrstu þrennuna sína er Benfica lagði Eintracht Frankfurt 4-2 í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á dögunum. Frankfurt stóð uppi sem sigurvegari eftir 2-0 sigur í seinni leiknum.

Það vakti athygli þegar Felix fagnaði þrennunni því hann hljóp bakvið markið og faðmaði boltasækinn vel og innilega. Liðsfélagar hans fylgdu í kjölfarið og fögnuðu allir einnig með boltasækinum.

Boltasækirinn er litli bróðir Joao og efnilegur leikmaður sem er að koma upp gegnum öflugt yngriflokkastarf félagsins, rétt eins og stóri bróðir sinn.




Athugasemdir
banner
banner