Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 19. apríl 2019 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Neymar byrjaður að æfa með hópnum
Mynd: Getty Images
Neymar er byrjaður að æfa aftur með leikmannahópi Paris Saint-Germain eftir að hafa brotið bein í fæti í 2-0 sigri gegn Strasbourg í janúar.

Í fjarveru Neymar datt PSG úr Meistaradeildinni gegn Manchester United en þetta er annað tímabilið í röð sem hann meiðist á viðkvæmum tímapunkti í Meistaradeildinni.

Brasilíski framherjinn verður líklegast orðinn leikfær á næstu vikum og mun því taka þátt í einhverjum leikjum áður en tímabilinu lýkur.

Neymar birti mínútu langt myndband á samfélagsmiðlum fyrr í kvöld þar sem hann sést rekja boltann og framkvæma einfaldar æfingar án erfiðleika.

„Mér líður vel," skrifaði Neymar með myndbandinu.




Athugasemdir
banner
banner