fös 19. apríl 2019 21:04
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Alaves missti niður tveggja marka forystu
Öll stig eru kærkomin fyrir Sergio Gonzalez sem ætlar sér að bjarga Valladolid frá falli.
Öll stig eru kærkomin fyrir Sergio Gonzalez sem ætlar sér að bjarga Valladolid frá falli.
Mynd: Getty Images
Alaves 2 - 2 Real Valladolid
1-0 John Guidetti ('4)
2-0 Jony ('24)
2-1 Joaquin Fernandez ('32)
2-2 Enes Unal ('76, víti)

Hvorki gengur né rekur hjá Alaves þessa dagana og er liðið dottið úr Evrópudeildarsæti eftir jafntefli gegn fallbaráttuliði Real Valladolid.

Heimamenn í Alaves komust í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik. John Guidetti gerði fyrsta markið með því að pressa markvörðinn og tækla boltann í netið þegar hann ætlaði að hreinsa.

Jony tvöfaldaði forystuna beint úr aukaspyrnu af hægri kanti. Hann gaf fyrir en enginn náði til boltans sem endaði í fjærhorninu, martraðar byrjun fyrir Yoel Rodriguez í marki Valladolid.

Joaquin Fernandez minnkaði forystuna fyrir gestina með marki úr aukaspyrnu, alls ekki ósvipuðu marki Jony. Spyrnan var á hægri kanti og gaf Fernandez fastan bolta fyrir sem enginn náði til og hafnaði hann í fjærhorninu.

Enes Unal jafnaði leikinn úr vítaspyrnu á 76. mínútu eftir að brotið hafði verið á Sergi Guardiola innan vítateigs. Yoel átti góðan leik eftir slakar upphafsmínútur og mikilvægt stig fyrir Valladolid.

Valladolid er með 32 stig eftir 33 umferðir, í harðri fallbaráttu. Alaves er með 46 stig og í harðri Evrópubaráttu, en síðast sigur liðsins kom 16. mars.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 29 22 6 1 64 20 +44 72
2 Barcelona 29 19 7 3 60 34 +26 64
3 Girona 29 19 5 5 59 34 +25 62
4 Athletic 29 16 8 5 50 26 +24 56
5 Atletico Madrid 29 17 4 8 54 34 +20 55
6 Real Sociedad 29 12 10 7 42 31 +11 46
7 Betis 29 10 12 7 34 33 +1 42
8 Valencia 28 11 7 10 32 32 0 40
9 Getafe 29 9 11 9 37 42 -5 38
10 Villarreal 29 10 8 11 47 51 -4 38
11 Las Palmas 29 10 7 12 29 32 -3 37
12 Osasuna 29 10 6 13 33 43 -10 36
13 Alaves 29 8 8 13 26 35 -9 32
14 Mallorca 29 6 12 11 25 35 -10 30
15 Vallecano 29 6 11 12 25 38 -13 29
16 Sevilla 29 6 10 13 36 44 -8 28
17 Celta 29 6 9 14 32 44 -12 27
18 Cadiz 29 3 13 13 20 40 -20 22
19 Granada CF 28 2 8 18 30 58 -28 14
20 Almeria 29 1 10 18 28 57 -29 13
Athugasemdir
banner
banner
banner