Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 19. apríl 2019 17:30
Arnar Helgi Magnússon
Ter Stegen fagnaði ekki - Fann til með De Gea
Mynd: Getty Images
David De Gea, markvörður Manchester United, gerði skelfileg mistök í öðru marki Barcelona í síðari viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á þriðjudag.

Lionel Messi átti þá skot að marki sem að David De Gea missti undir hendurnar á sér og boltinn endaði í netinu.

Marc-André ter Stegen, markvörður Barcelona, sagðist ekki hafa getað fagnað markinu.

„Við spilum í sömu stöðu og ég fann til með honum á þessu augnabliki. Þetta voru slæm mistök," sagði Þjóðverjinn eftir leik.

„Ég talaði við hann eftir leik og sagði honum að við værum öll mennsk og þetta hefði líka getað komið fyrir mig. Lífið heldur áfram eftir þetta."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner