Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 19. apríl 2020 14:30
Ívan Guðjón Baldursson
Lukaku svaraði Íslendingi á Twitter: Greenwood kaaaaaaldur
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Belgíski sóknarmaðurinn Romelu Lukaku svaraði spurningum fylgjenda sinna á Twitter í gærkvöldi. Farið var um víðan völl og virtist Lukaku hvergi smeykur að svara aðdáendum sínum opinskátt.

Lukaku fékk aðallega fótboltaspurningar en var einnig spurður um tónlistarsmekk og annað.

Belginn marksækni svaraði meðal annars spurningu frá Hermanni Árnasyni um efnilegasta leikmanninn hjá Manchester United.

Hver gaf mest hvetjandi ræðu sem þú hefur heyrt í fótboltaleik?
„(Antonio) Conte þegar við vorum 2-0 undir í hálfleik gegn AC Milan. Hann öskraði ekkert á okkur heldur sagði hvað við áttum að gera betur. Við gerðum það og unnum," svaraði Lukaku og átti þá við 4-2 sigur frá því í febrúar, þegar Zlatan Ibrahimovic skoraði og lagði upp í fyrri hálfleik og staðan 0-2 í leikhlé.

Muntu einhvern tímann snúa aftur til Anderlecht eins og Kompany gerði?
„Klárlega"

Ef þú gætir valið sóknarmann úr fortíðinni til að spila með, hver væri það?
„Thierry Henry eða Anelka"

Hver er helsti munurinn á enska og ítalska boltanum?
„Hérna er meira um taktík... það er meiri hraði í enska boltanum."

Muntu spila aftur í úrvalsdeildinni og þá fyrir Everton?
„Ég held ekki en ég elskaði dvöl mína hjá Everton."

Besti ungi leikmaðurinn hjá Man Utd?
„Greenwood, sá strákur er kaaaaaaldur."

Besta stund í United treyju?
„Fyrsta markið. Stoðsendingin frá Marcus Rashford var fullkomin."

Hvað værir þú í dag ef ekki knattspyrnumaður?
„Ég hef aldrei velt því fyrir mér. Ég var með eitt markmið, að verða atvinnumaður og geta séð fyrir fjölskyldunni."

Viltu að sonur þinn verði atvinnumaður í knattspyrnu eins og þú?
„Ég vil bara að hann sé heilbrigður, hamingjusamur og elskaður."

Hvort er betra, franskt eða belgískt rapp?
„Bandarískt rapp bróðir."

Hvernig var að spila reglulega á Old Trafford?
„Ólýsanlegt."

Spilar þú FIFA/FUT?
„Nei nei nei, ég spila COD og Battlefield sem stendur."

Gefðu fyrstu snertingunni þinni einkunn upp í 10
„Hún er betri en þín, það er öruggt."

Hver er uppáhalds Pokemoninn þinn?
„Ég horfði á Dragonball þá og geri enn í dag. Tékkaðu á Goku og hans nýjústu þróun."


Athugasemdir
banner