Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 19. maí 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Skoraði glæsilegt sigurmark í Brasilíu
Mynd: Getty Images
Atletico Mineiro mætti Flamengo í stórleik í brasilíska boltanum í gærkvöldi og úr varð svakaleg viðureign.

Staðan var jöfn, 1-1, eftir jafnan fyrri hálfleik en undir lok hálfleiksins misstu heimamenn mann af velli.

Tíu leikmenn Atletico mættu úr klefanum og komust yfir skömmu síðar með stórglæsilegu marki úr afar þröngu færi, sem er hægt að sjá hér fyrir neðan.

Gestirnir tóku öll völd á leiknum í kjölfarið og áttu sextán skot í seinni hálfleik en boltinn rataði ekki í netið.

Atletico er í öðru sæti með tólf stig eftir fimm umferðir. Flamengo er með sjö stig.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner