Leicester City keypti Jamie Vardy sumarið 2012 úr 'Conference' deildinni, efstu utandeildinni í Championship deildina. Átta árum, 126 mörkum og Englandsmeistaratitli síðar er hann í öðru sæti yfir þá leikmenn sem nutu eða hafa notið hvað mestri velgengni í úrvalsdeildinni eftir að hafa verið keyptir úr utandeildinni.
Ian Wright er í efsta sæti en leikmennina níu má sjá hér að neðan, 90min.com tók saman.
Ian Wright er í efsta sæti en leikmennina níu má sjá hér að neðan, 90min.com tók saman.
#9: Andre Gray. Kom frá Luton árið 2014 til Brentford og hefur í dag skorað yfir 20 mörk í efstu deild.
#8: Charlie Austin. Austin var frábær með Poole Town áður en Swindo Town náði í hann í C-deildina árið 2009. Fimm árum seinna fékk hann tækifærið með QPR í úrvalsdeildinni og átti gott tímabil.
#7: Michail Antonio. Antonio gekk í raðir Tooting and Mitcham tólf ára gamall og átján ára keypti Reading hann. 25 ára gamall var hann svo kominn í úrvalsdeildina. Hann var valinn leikmaður ársins tímabilið 2016/17 hjá West Ham.
#6: Tyrone Mings. Mings var að spila með Chippenhm Town og var að vinna sem ráðgjafi þegar kom að veðsetningu eigna þegar Ipswich keypti hann. Hann hefur síðan leikið með Bournemouth og Aston Villa. Hann lék sinn fyrsta landsleik í nóvember 2019.
#5: Steve Finnan. Finnan er eini leikmaðurinn til að taka þátt í HM, Meistaradeildinni, Evrópudeildinni, Intertoto keppninni sálugu og efstu fimm deildum Englands. Bakvörðurinn var hjá Welling þegar Birmingham keypti hann og hann átti í kjölfarið eftir að vinna Meistaradeildina og enska bikarinn með Liverpool.
#4: Chris Smalling. Smalling var hjá Maidstone þegar Fulham keypti hann 2008. Átján mánuðum seinna keypti Sir Alex Ferguson miðvörðinn til Man Utd og hefur hann unnið Englandsmeistaratitilinn í tvígang, orðið bikarmeistari, Evrópudeildarmeistari og tekið þátt í tveimur stórmótum með Englandi.
#3: Les Ferdinand. Ferdinand náði að afreka það að skora 149 mörk í úrvasdeildinni og er áttundi markahæsti í sögu úrvalsdeildarinnar. Ferdinand var valinn leikmaður tímabilsins á sinni fyrstu leiktíð hjá Newcastle en hann kom fyrst til QPR frá Hayes. Áður var hann hjá AEL í utandeidlinni. Hann átti átta góð tímabil með QPR áður en hann hélt til Newcastle og síðar Tottenham.
#2 Jamie Vardy. Vardy kom til Fleetwood árið 2011 eftir tíma hjá Stocksbridge Park Steels og Halifax Town. Leicester fór upp í úrvalsdeildina 2014 og vorið 2016 varð lið félagsins Englandsmeistari. Vardy skoraði 24 mörk það tímabilið og fór á EM með Englandi um sumarið. Vardy var markahæstur í deildinni áður en henni var slegið á frest í mars.
Athugasemdir