Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 19. maí 2021 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Barbára Sól: Áslaug getur náð eins langt og hún vill
Áslaug Dóra
Áslaug Dóra
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir er átján ára miðvörður sem er á sínu þriðja tímabili með liði Selfoss. Viðtal við Barbáru Sól Gísladóttur, samherja Áslaugar, verður birt hér á Fótbolta.net á næstunni.

Hún var m.a. spurð út í samherja sinn í varnarlínu Selfoss.

Segðu mér aðeins frá Áslaugu Dóru. Hvernig leikmaður er hún? Hverjir eru hennar styrkleikar semm leikmaður?

„Áslaug er mjög góð í fótbolta, hún er góð með boltann og er mjög yfirveguð á vellinum. Það er mjög þægilegt að spila við hliðina á Áslaugu, það er alltaf hægt að treysta á hana og maður veit bara að hún er alltaf tilbúin í cover," sagði Barbára.

Hvað getur hún náð langt?

„Áslaug getur náð eins langt og hún vill."

Er einhver önnur ung og upprennandi í liðinu sem knattspyrnuaðdáendur eiga að fylgjast með hjá Selfossi í sumar?

„Ég mæli með að fylgjast með Katrínu Ágústdóttur, hún er fædd árið 2005 og er mjög efnilegur sóknarmaður," sagði Barbára.

Sjá einnig:
Hin hliðin - Áslaug Sigurbjörnsdóttir
Athugasemdir
banner
banner
banner