Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 19. maí 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Cavani kominn í hóp með Zlatan og Sheringham
El Matador hefur verið góður með United á þessari leiktíð
El Matador hefur verið góður með United á þessari leiktíð
Mynd: EPA
Úrúgvæski framherjinn Edinson Cavani skoraði 10. deildarmark sitt á leiktíðinni með Manchester United í 1-1 jafnteflinu gegn Fulham í gær en óhætt er að segja að þetta hafi verið eitt af mörkum tímabilsins

Cavani, sem er 34 ára gamall, hefur komið með ferskleika inn í sóknarleik United á þessu tímabili en hann framlengdi samning sinn um ár í síðustu viku.

Hann fagnaði því svo með þessu gullfallega marki af 40 metra færi fyrir framan stuðningsmenn United á Old Trafford.

Eins og áður segir var þetta 10. deildarmark hans á tímabilinu en hann er aðeins þriðji leikmaðurinn sem er 33 ára eða eldri sem tekst að gera þetta fyrir United í úrvalsdeildinni.

Teddy Sheringham var 35 ára gamall þegar hann raðaði inn 15 deildarmörkum með United árið tímabilið 2000-2001 en Zlatan Ibrahimovic gerði gott betur tímabilið 2016-2017 þegar hann skoraði 17 deildarmörk, þá 36 ára.
Athugasemdir
banner
banner