Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 19. maí 2021 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Svava Rós spáir í fjórðu umferð Pepsi Max-kvenna
Keflavík vinnur samkvæmt Svövu
Keflavík vinnur samkvæmt Svövu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Svava Rós
Svava Rós
Mynd: Quentin Salinier/Bordeaux
Eva Ben var með þrjá rétta þegar hún spáði í leiki 3. umferðar í Pepsi Max-deildinni.

Svava Rós Guðmundsdóttir, landsliðskona og avinnukona hjá Bordeaux í Frakklandi spáir í leiki 4. umferðar. Allir leikirnir fara fram í kvöld.

ÍBV 1 - 3 Valur (klukkan 18)
Þetta verður jafn leikur. Sérstaklega þar sem þetta er í Eyjum. Hópurinn hjá ÍBV er spennandi en reynslan í Valsliðinu klárar dæmið. Elín Metta sýnir hversu mikilvæg hún er fyrir Valsliðið

Þór/KA 2 - 1 Stjarnan (klukkan 18)
Þetta verður æsispennandi leikur. Það verða færi á báða bóga en heimavöllurinn gefur sigurinn.

Breiðablik 4 - 0 Tindastóll (klukkan 18)
Agla María heldur uppteknum hætti og heldur áfram að skora. Þetta verður nokkuð þæginlegur sigur Blika þó Tindastóll mæti æstar í leikinn.

Þróttur R 0 - 2 Selfoss (klukkan 20)
Selfoss heldur áfram á sigurbraut gegn vel spilandi liði Þróttar. Selfoss stelpurnar eru að gefa skýr skilaboð að þær ætli að vera með í titilbaráttunni í ár.

Fylkir 0 - 1 Keflavik (klukkan 20)
Þetta verður baráttuleikur fram á síðasta flaut en Keflavík nær inn marki seint í seinni hálfleik.

Fyrri spámenn:
Eva Ben - 3 réttir
Guðrún Arnardóttir - 0 réttir (1 frestað)
Athugasemdir
banner
banner
banner