Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 19. maí 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Xhaka ekki á förum frá Arsenal
Granit Xhaka er ánægður í Lundúnum
Granit Xhaka er ánægður í Lundúnum
Mynd: Getty Images
Granit Xhaka, leikmaður Arsenal á Englandi, segist ekki á förum frá félaginu en hann hefur verið orðaður við Borussia Monchengladbach undanfarnar vikur.

Xhaka er í viðtali við RP Online þar sem hann ræðir tímabilið hjá Arsenal en þar var hann spurður út í framtíðina.

Svissneski landsliðsmaðurinn er sagður vilja heim til Þýskalands og aftur til Gladbach þar sem hann spilaði í fjögur ár við góðan orðstír en hann segir þetta rangt.

„Það eru alltaf orðrómar undir lok tímabils, það er alveg klárt en ég á enn tvö ár eftir af samningnum við Arsenal og ég er mjög ánægður með fjölskyldunni minni hér," sagði Xhaka.
Athugasemdir
banner