Það var létt yfir leikmönnum íslenska landsliðsins í Gelendzhik í morgun fyrir æfingu liðsins.
Þetta var fyrsta æfing hópsins í heild sinni eftir jafnteflið gegn Argentínu en undirbúningur fyrir leikinn gegn Nígeríu í Volgograd sem fram fer á föstudaginn er nú kominn á fullt.
Þetta var fyrsta æfing hópsins í heild sinni eftir jafnteflið gegn Argentínu en undirbúningur fyrir leikinn gegn Nígeríu í Volgograd sem fram fer á föstudaginn er nú kominn á fullt.
Varnarmaðurinn, Ragnar Sigurðsson leikmaður Rostov í Rússlandi fagnar í dag 32 ára afmæli sínu og í tilefni þess sungu leikmenn og starfsmenn landsliðsins fyrir Ragga afmælissönginn.
Það má svo búast við því að Raggi fái afmælisköku í dag.
Athugasemdir