Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 19. júní 2019 16:20
Elvar Geir Magnússon
Everton kemst að samkomulagi við Barcelona
Andre Gomes.
Andre Gomes.
Mynd: Getty Images
Barcelona hefur samþykkt 22 milljóna punda tilboð í Andre Gomes. Miðjumaðurinn lék mjög vel með Everton á lánssamningi síðasta tímabil.

Liverpool Echo segir að Everton gæti gengið frá kaupum á Gomes á næsta sólarhring.

Gomes var keyptur til Barcelona frá Valencia 2016 eftir að hafa orðið Evrópumeistari með portúgalska landsliðinu.

Gomes náði ekki að láta að sér kveða hjá Börsungum en lék 29 leiki með Everton í úrvalsdeildinni og hlaut verðskuldað lof fyrir frammistöðu sína.

Tottenham og West Ham eru meðal félaga sem sögð eru hafa reynt að krækja í Gomes en nú er allt útlit fyrir að Marco Silva og lærisveinar muni njóta þjónustu hans áfram.
Athugasemdir
banner
banner
banner