Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 19. júní 2019 11:37
Elvar Geir Magnússon
Fullyrða að Joao Felix hafi gert samkomulag við Atletico Madrid
Joao Felix.
Joao Felix.
Mynd: Getty Images
Útvarpsstöðin Onda Cero fullyrðir að Atletico Madrid hafi gert samkomulag við hinn 19 ára Joao Felix sem hefur slegið í gegn með Benfica.

Sagt er að Felix hafi þegar staðist læknisskoðun hjá Madrídarfélaginu.

Marca sagði á mánudag að Atletico væri tilbúið að kaupa þennan spennandi leikmann fyrir 107 milljónir punda. Hann hefur meðal annars verið orðaður við Manchester City og Manchester United.

Felix skoraði 20 mörk og átti 11 stoðsendingar í 43 leikjum fyrir portúgalska félagið Benfica á liðnu tímabili.

Skærasta stjarna Atletico, Antoine Griezmann, er sagður á förum og þá ætti félagið að fá væna upphæð til leikmannakaupa. Atletico hafnaði í öðru sæti spænsku deildarinnar á liðnu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner