Ólafur Jóhannesson var að vonum svekktur eftir 3-2 tap Vals gegn KR í Vesturbænum í kvöld.
Valsmenn komust í 2-0 í upphafi seinni hálfleiks en þeir sáu ekki til sólar eftir að KR minnkaði muninn í 2-1.
Valsmenn komust í 2-0 í upphafi seinni hálfleiks en þeir sáu ekki til sólar eftir að KR minnkaði muninn í 2-1.
Lestu um leikinn: KR 3 - 2 Valur
„Það er erfitt að meta það svona fljótt eftir leik en mér fannst við vera ragir. Eins og við þorðum ekki að spila boltanum og halda honum. Við duttum full aftarlega," sagði Ólafur Jóhannesson þjálfari Vals í viðtali eftir leik.
„Það setur skjálfta í öll lið að fá á sig mark en viðbrögð okkar var ekki nægilega góð."
Hann segir að liðið hafi þurft að halda betur boltanum í seinni hálfleik en það hafi ekki gengið eftir.
„Við vorum búnir að tala um það að við þyrftum að þora að fara á þá og halda boltanum en ekki detta of aftarlega en því miður, fórum við of langt til baka."
Valur er með sjö stig eftir níu leiki í 9. sæti deildarinnar.
„Við erum í botnbaráttu. Við verðum að virða það."
Viðtalið við Ólaf má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir