Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 19. júní 2019 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Orðaður við Arsenal en lýsir yfir áhuga á Gladbach
Alexis Claude-Maurice í unglingalandsleik með Frakklandi.
Alexis Claude-Maurice í unglingalandsleik með Frakklandi.
Mynd: Getty Images
Alexis Claude-Maurice, leikmaður sem hefur verið orðaður við Arsenal og West Ham, segist vilja fara til Borussia Mönchengladbach í Þýskalandi.

Þessi 21 árs gamli kantmaður skoraði 14 mörk í 35 leikjum í frönsku B-deildinni með Lorient á síðasta tímabili.

Hann er tilbúinn að yfirgefa Lorient, en enska úrvalsdeildin er ekki draumaáfangastaðurinn eins og staðan er núna.

„Ég vil fara til Mönchengladbach. Það er félag sem treystir á unga leikmenn og liðið er að fara að spila í Evrópudeildinni. Það er verkefni sem hentar mér," sagði Claude-Maurice við L'Equipe.

Gladbach hafnaði í fimmta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner