Gareth Bale er mikið til umræðu í spænskum fjölmiðlum þessa dagana en hann er sagður á leiðinni burt frá Real Madrid.
Nokkur lið hafa lýst yfir áhuga á velska landsliðsmanninum, þar á meðal Bayern Munchen og Manchester United.
Jonathan Barnett, umboðsmaður Bale, segir ekki inni í myndinni að leikmaðurinn fari á láni til annars félags.
„Ef hann fer þá færi hann ekki á láni. Það er ekki til umræðu eins og staðan er í dag."
Barnett bætir því við að afar ólíklegt teljist að hann gangi í raðir Manchester United.
„Það er erfitt að segja en mögulega gæti hann passað þar inn. Hann er einn af bestu leikmönnum heims í dag. Ég ætla ekkert að útiloka en það er mjög ólíklegt að hann endi þar."
Athugasemdir