KV hefur fengið framherjann Gauta Þorvarðarson aftur í sínar raðir frá Reyni Sandgerði.
Gauti skoraði sex mörk í sjö leikjum með KV í 3. deildinni árið 2018 en í fyrra skoraði hann fimm mörk í tuttugu leikjum með Reyni.
Gauti skoraði sex mörk í sjö leikjum með KV í 3. deildinni árið 2018 en í fyrra skoraði hann fimm mörk í tuttugu leikjum með Reyni.
Reynir Sandgerði hefur aftur á móti fengið króatíska kantmanninn Ante Marcic í sínar raðir.
KV og Reynir mætast í 1. umferð í 3. deildinni í Vesturbænum í kvöld.
KV er spáð efsta sæti í spá þjálfara í 3. deildinni en Reynismönnum er spáð 4. sæti.
Athugasemdir