Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 19. júní 2020 16:30
Elvar Geir Magnússon
Hudson-Odoi ekki með gegn Villa
Callum Hudson-Odoi.
Callum Hudson-Odoi.
Mynd: Getty Images
Chelsea ferðast til Birmingham á sunnudaginn og leikur gegn Aston Villa.

Varnarmaðurinn Fikayo Tomori og vængmaðurinn Callum Hudson-Odoi eru á meiðslalistanum.

Tomori er að glíma við vöðvameiðsli en Hudson-Odoi er að glíma við smávægileg meiðsli og verður ekki klár í leikinn.

Frank Lampard, stjóri Chelsea, sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag.

Þar var hann meðal annars spurður út í þýska sóknarmanninn Timo Werner sem er að ganga í raðir bláliða frá RB Leipzig í Þýskalandi.

„Hann er hæfileikaríkur leikmaður sem við í langan tíma horft til. Hann hefur átt frábært tímabil og mun styrkja okkur," sagði Lampard.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner