Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 19. júní 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Richarlison: Það eru til betri varnarmenn en Van Dijk
Richarlison
Richarlison
Mynd: Getty Images
Richarlison, sóknarmaður Everton, segir að það séu nokkrir varnarmenn í heiminum betri en Virgil van Dijk varnarmaður Liverpool.

Richarlison og Van Dijk mætast í nágrannaslag Everton og Liverpool á sunnudagskvöldið.

„Fólk talar mikið um hann. Já hann er frábær varnarmaður en ég hef leikið áður á hann," sagði Richarlison um Van Dijk.

„Hann var valinn einn af þremur bestu varnarmönnum í heimi og hann hefur átt stórstkostlegt tímabil. En já, fyrir mér eru til betri varnarmenn."

Aðspurður hverja Richarlison telur vera betri svaraði Brasilíumaðurinn: „Thiago Silva, Marquinhos og Sergio Ramos."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner