Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   fös 19. júní 2020 23:36
Sigurður Marteinsson
Siggi Höskulds: Við stefnum á að vera í toppbaráttu
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Virkilega ánægður, erfiður útivöllur að koma á'' sagði kátur Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Leiknis eftir 1 -3 sigur á Þrótti í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar

Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 -  3 Leiknir R.

„Við vissum það að Þróttararnir yrðu mjög skipulagðir á móti okkur og það gekk brösulega að brjóta þá og spila í gegnum þá. Við vissum það að þeir yrðu þéttir þannig að við þurftum að finna lausnir við því á æfingasvæðinu''

Undirbúningstímabilið hefur verið í lengra lagi á þessu sumri sökum COVID19. Það hefur því gefist nógur tími fyrir knattspyrnuáhugamenn að spá og spekúlera fyrir komandi tímabíl. Leiknir hefur verið spáð í kringum 4-5.sæti en Sigurður segir að Leiknir ætli sér að fara upp um deild.

„Við stefnum á að vera í toppbaráttu og fara upp''

Flestir telja að deildin verði jafnari í sumar en oft áður og nokkur lið geri tilkall til þess að fara upp. Sigurður tekur undir það. „Mörg lið sem eru að fara að gera atlögu að þessu þannig að við þurfum að vera á tánum í hverjum einasta leik''

Sigurður er sáttur með leikmannahópinn og segir Leikni ekki ætla að leita að fleiri leikmönnum. „Nei alls ekki, hópurinn er klár''
Athugasemdir
banner
banner