„Gríðarlega svekktur með að hafa ekki fengið eitthvað útúr þessum leik, það er bara þannig. Þetta var 50/50 leikur og við mættum hérna klárir, menn lögðu sig fram og týpískur fyrsti leikur sem ræðst á algjöru smáatriði,'' sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, þjálfari Grindavíkur eftir svekkjandi 2-1 tap gegn Þór í fyrsta leik Lengjudeildar karla.
Lestu um leikinn: Þór 2 - 1 Grindavík
Sigurbjörn var gríðarlega ósáttur við Sigurð Hjört Þrastarson, dómara leiksins þegar hann dæmdi ekki brot í aðdraganda sigurmarks Þórs. Gunnar Þorsteinsson, fyrirliði Grindavíkur lá þá alblóðugur í andlitinu eftir olnbogaskot.
„Þegar markið kemur þá er bara brotið á mínum manni. Blóðugur hérna, bókstaflega og fossblæðir úr honum. Við erum bara með leikmann niðri, sem er þá í dekkningu eða pressu. Neinei, þeir misstu af því, það er bara fótboltinn. Helvíti grátlegt að þetta skyldi vera atvikið sem varð til þess að við fengum ekkert útúr þessum leik. En ég er ánægður með strákana,'' sagði Sigurbjörn.
„Mér fannst við eiga meira skilið útúr þessum leik, en það bara telur ekkert að finnast og eiga eitthvað. Menn verða að klára leikina og við svosem vorum að gera það, en við vorum slegnir kaldir hérna - bókstaflega,'' sagði Sigurbjörn að lokum.
Athugasemdir