Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   fös 19. júní 2020 23:30
Birna Rún Erlendsdóttir
Tinna: Þetta hafðist að lokum
- Grótta vann Fjölni í Lengjudeild kvenna í kvöld.
Tinna Jónsdóttir, fyrirliði Gróttu
Tinna Jónsdóttir, fyrirliði Gróttu
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
„Ótrúlega ánægð með liðið og stelpurnar. Við þurftum að vera mjög þolinmóðar í dag og vinna mikið fyrir þessu og það bara hafðist að lokum. Ég er gríðarlega stolt.“ Segir Tinna Jónsdóttir, fyrirliði Gróttu eftir 1-0 sigur á Fjölni í Lengjudeildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Grótta 1 -  0 Fjölnir

„Við ætluðum að halda boltanum og stjórna leiknum og skapa okkur færi sem gekk ekki kanski alveg nógu vel í fyrri hálfleik. Við komum aðeins mótiveraðari út í seinni hálfleik og skorum mark sem var dæmt af og við bara gáfumst ekki upp og uppskárum 1-0 sigur.“

Leikurinn var frekar tíðindalaus í fyrri hálfleik en var þó mun líflengri undir lok leiksins. 

„Við ætluðum að vera grimmari á seinni boltann. Mér fannst það aðeins vanta í fyrri hálfleik og ég held að það hafi bara heppnast mjög vel. Síðan bara halda áfram að vera þolinmóðar, við vissum það að við myndum skora ef að við myndum gera það.“

Grótta krækti í sín fyrstu stig í Lengjudeild kvenna í kvöld, en liðið eru nýliðar í deildinni eftir að hafa tryggt sér upp í fyrra. Þeim er þó ekki spáð falli og segir Tinna að það eru háleit markmið innan hópsins. 

„Já við erum nýliðar í deildinni og hérna það er engin pressa út á við en við erum með háleit markmið innan hópsins, þannig við ætlum bara að koma að krafti inn í deildina og vera með.“

Viðtalið í heild sinni má nálgast í spilaranum að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner