„Fyrri hálfleikur var frábær að okkar hálfu og vorum við verðskuldað yfir. Í seinni hálfleik vissum við alveg að þetta yrði erfitt og að við þyrftum að halda haus sem hefur vantað hingað til en loksins tókum við þetta skref að klára leiki og klára 90 mínútur á fullu og það skilaði okkur sigri í dag.“ Sagði Arnar Páll Garðarsson annar af þjálfurum KR sem sótti sigur í annað sinn í sumar þegar liðið heimsótti Keflavík suður með sjó í dag en lokatölur urðu 3-1 fyrir KR.
Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 3 KR
Varnarleikur KR var sterkur í dag í vindinum í Keflavík og var heimaliðið í basli við að skapa sér teljandi færi. Um varnarleikinn sagði Arnar.
„Mér fannst þær aldrei opna okkur og skapa dauðafæri og við höfum talað um það eftir síðustu leiki og jafnvel í leikjum sem við höfum verið að tapa þrjú, fjögur núll að liðin hafa ekkert endilega verið að opna okkur mikið. Við höfum bara verið að gera klaufaleg mistök. Markið sem við fáum á okkur er klaufalegt en fyrir utan það finnst mér þær ekki skapa neitt teljandi.“
KR liðið sem byrjaði mótið afleitlega hefur heldur bætt í síðustu vikur og sótt fjögur stig í síðustu tveimur leikjum sem báðir voru á útivelli. Er bjartsýnin í Vesturbænum að aukast?
„Já klárlega. Við förum inn í þessa pásu jákvæð eins og við erum búin að vera allt tímabilið. En það að vinna leiki gefur manni alveg ofboðslega mikið og þetta var stór hluti af því að við höldum okkur uppi í þessari deild.“
Sagði Arnar en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir