Girona tryggði sig í kvöld upp í efstu deild á Spáni eftir að hafa unnið Tenerife í úrslitum umspilsins, 3-1.
Girona hafnaði í 6. sæti umspilsins á þessu tímabili á meðan Tenerife hafnaði í 5. sæti.
Bæði lið unnu þægilega í undanúrslitum umspilsins og mættust því í tveggja leikja rimmu í úrslitum.
Liðin gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum en Girona hafði svo betur í kvöld, 3-1.
Girona féll úr efstu deild árið 2019 og var hársbreidd frá því að komast aftur upp á síðasta ári en liðið tapaði þá í úrslitum umspilsins.
Athugasemdir